Allir sjóðir
Fagbréf atvinnulífsins
Staðfesting á hæfni sem starfsfólk hefur áunnið sér í starfi. Fræðslumiðstöð atvinnulífsins gefur bréfið út; starfsmenntasjóðir geta fjármagnað ferlið.
Á vinnumarkaði sem tekur örum breytingum skiptir máli að færni til starfa sé sýnileg. Fagbréf atvinnulífsins gerir það kleift: hæfni er metin með raunfærnimati, þjálfun tekur við þar sem vantar, og að lokum er færnin staðfest með fagbréfi fyrir viðkomandi starf.
Verkefnið er samstarf Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA), Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands. FA gefur bréfin út og vottar að rétt aðferð hafi verið notuð.
Hvernig er sótt um fjármögnun?
Vinnustaður sækir um styrk til starfsmenntasjóðs í gegnum Áttina. Þegar sjóðurinn hefur samþykkt verkáætlun getur raunfærnimat og þjálfun hafist. Landsmennt er á meðal sjóða sem hafa samþykkt greiðsluþátttöku. Uppfærðan lista er að finna hjá FA.
- Atvinnurekandi fyllir út umsókn á attin.is.
- Sjóðurinn samþykkir framkvæmd, með fyrirvara um réttindastöðu.
- Raunfærnimat, starfsþjálfun þar sem við á, og útgáfa fagbréfs.
Nánari lýsingu á ferli, starfsgreinum og gæðakröfum er að finna á vef Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.