Um okkur
Starfsmenntasjóður starfsmanna sveitarfélaga á landsbyggðinni. Styður sveitarfélög og stofnanir í þjálfun starfsfólks.
Sveitamennt SGS og LN er starfsmenntunarsjóður starfsmanna sveitarfélaga á landsbyggðinni innan aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands.
Sveitamennt tók formlega til starfa 1. janúar 2007 og byggir á gr. 13.4.3. um starfsmenntunarsjóð í kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsgreinasambands Íslands (SGS).
Markmið sjóðsins er annars vegar að auka möguleika sveitarfélaga og stofnana þeirra á að þróa starfssvið sitt þannig að það samræmist þeim kröfum sem gerðar eru til þeirra á hverjum tíma og efla starfsmenntun starfsmanna með það fyrir augum að þeir verði færari til að takast á við sífellt fjölbreyttari verkefni.
Hlutverk
Sveitamennt skiptist í tvær deildir og sinnir hlutverki sínu með eftirfarandi hætti:
Sveitarfélagadeild
Sinnir hlutverki sínu með því að veita styrki til fræðsluverkefna á sviði starfsmenntunar sem eru í samræmi við markmið sveitarfélaga sem í sjóðinn greiða; stéttarfélaga sem að sjóðnum standa; eða verkefna sem sjóðstjórn skipuleggur. Auk þess styrkir deildin verkefni sem aðilar semja um í kjarasamningi.
Einstaklingsdeild
Veitir styrki til einstaklinga, félagsmanna aðildarfélaganna, til þess að þeir eigi kost á að sækja nám/námskeið með vinnu án verulegs kostnaðar.
Samstarfssamningur Sveitamenntar og Fræðslusetursins Starfsmenntar
Félagsmenn í aðildarfélögum innan SGS geta sótt námskeið sem Fræðslusetrið Starfsmennt heldur vítt og breitt um landið. Sveitamennt greiðir skv. samningnum fyrir þátttöku almennra starfsmanna sveitarfélaga sem heyra undir sjóðinn.