Starfsreglur Sveitamenntar í heild: skilyrði, upphæðir, áunnin réttindi og frágangur styrkja, bæði fyrir einstaklinga og vinnustaði.
Umsækjandi sem reynist hafa gefið rangar eða villandi upplýsingar, eða notar fölsuð gögn við styrkumsókn, missir rétt sinn til styrks í 36 mánuði. Hafi umsækjandi fengið greidda styrkupphæð á grundvelli falsaðra eða rangra gagna, er heimilt að krefja viðkomandi um endurgreiðslu á heildarupphæð styrks auk dráttarvaxta. Stjórn sjóðsins áskilur sér rétt til að kæra til lögreglu brot af þessu tagi.
Fullur réttur í námsstyrk er 100% af reikningi en þó aldrei meira en kr. 180.000 á ári frá og með 1. janúar 2026 og gildir gagnvart þeim umsóknum sem berast eftir þann tíma.
Einstaklingar sem þurfa að sækja styrkhæft nám eða námskeið um langan veg innanlands eiga rétt á stuðningi við ferða- og dvalarkostnað. Sótt er um á sérstöku eyðublaði og styrkurinn afgreiddur af stéttarfélaginu í umboði Sveitamenntar, sér frá og dregst frá hámarki einstaklingsstyrkja.
Endurskoðun: Ef félagsmaður telur sig eiga rétt á styrki til starfsmenntunar, en er hafnað um styrk af viðkomandi verkalýðsfélagi, getur hann vísað umsókn sinni til stjórnar Sveitamenntar til afgreiðslu.
Breyting á starfsreglum: Reglur þessar geta tekið breytingum samkvæmt ákvörðun stjórnar hverju sinni.
Undanskilið er háskólanám starfsmanna hjá sveitarfélögum eða stofnunum þeirra; slíkt nám er styrkt með einstaklingsstyrkjum.
Sveitamennt veitir styrk að hámarki kr. 170.000 til sveitarfélags eða stofnunar þess vegna þátttöku hvers einstaklings í náms- og kynnisferðum innanlands eða erlendis. Styrkurinn nær yfir kostnað vegna flugs, gistingar og ferða á milli staða. Hámarksstyrkur er veittur á fjögurra ára fresti.
Ef sveitarfélag eða stofnun þess óskar eftir að senda starfsfólk til að sækja nám eða námskeið erlendis sem ekki stendur til boða innanlands, er hægt að sækja um styrk að hámarki kr. 170.000 vegna hvers einstaklings. Ef sambærilegt námskeið er í boði innanlands er ferðakostnaður undanskilinn heildarkostnaði og því ekki styrktur. Námskeiðsgögn/bækur eru ekki styrkt sérstaklega.
Félagsmenn í aðildarfélögum innan SGS geta sótt námskeið sem Fræðslusetrið Starfsmennt býður upp á vítt og breitt um landið. Sveitamennt greiðir milliliðalaust, skv. samningi, fyrir þátttöku almennra starfsmanna sem jafnframt eru félagsmenn aðildarfélaga SGS á landsbyggðinni.
Stjórn sjóðsins áskilur sér rétt til breytinga á starfsreglunum án fyrirvara.
Reglurnar hér að ofan eru settar af stjórn sjóðsins á grundvelli reglugerðar hans, sem kveður á um skipulag sjóðsins, stjórn, tekjur og reikningsskil. Lesa reglugerðina.