Algengar spurningar um styrki Landsmenntar til einstaklinga og fyrirtækja.
Frumrit reiknings á þínu nafni og staðfestingu á greiðslu úr heimabanka. Fyrir nám erlendis þarf einnig sundurliðaða kostnaðarskiptingu og þýðingu á ensku eða íslensku ásamt greiðslustaðfestingu úr íslenskum banka.
Áunninn réttur helst óbreyttur við flutning milli aðildarfélaga hinna fræðslusjóðanna, í fæðingar-/foreldraorlofi og hjá atvinnuleitendum, svo lengi sem félagsgjöld eru greidd. Í tímabundnu hléi af vinnumarkaði helst rétturinn í allt að 24 mánuði; hættir þú alfarið að greiða til félagsins helst rétturinn í 3 mánuði. Ellilífeyrisþegar halda réttinum í allt að 24 mánuði.
Já, hafir þú ekki nýtt réttinn í 2–3 ár getur þú átt rétt á styrk fyrir eitt samfellt nám eða námskeið, að því gefnu að félagsgjöld hafi verið greidd að lágmarki 20 af síðustu 24 mánuðum (2 ár) eða 30 af síðustu 36 mánuðum (3 ár).
Já, sé umsókn hafnað af stéttarfélaginu getur þú vísað henni til stjórnar Landsmenntar til endurskoðunar á afgreiðslu. Hafa þarf samband við skrifstofu Landsmenntar áður fyrir nánari upplýsingar
Þú missir rétt til styrks í 36 mánuði, þarft að endurgreiða styrkinn með dráttarvöxtum, og málið getur verið kært til lögreglu.
Launakostnaður fyrirtækja, veitingar og bókakaup á námskeiðum eru aldrei hluti af þeim kostnaði sem sjóðurinn styrkir. Ferðakostnaður og gisting vegna námskeiða erlendis. Náms- og kynnisferðir fyrirtækja.
Almennur styrkur er þá 81% í stað 90%, að öðru leyti gilda sömu reglur.
Já, þau teljast alltaf starfstengd og eru styrkt samkvæmt almennum reglum.