Starfsreglur Landsmenntar í heild: skilyrði, áunnin réttindi og frágangur styrkja, bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Fræðslusjóður SA og verkafólks á landsbyggðinni úthlutar einstaklingsstyrkjum til félagsfólks þeirra stéttarfélaga sem eru aðilar að Starfgreinasambandsins (SGS) utan þeirra sem mynda Flóabandalagið
Félagsmaður sem unnið hefur fullt starf í a.m.k. 6 mánuði af síðustu 24 og greitt til aðildarfélags Landsmenntar á þeim tíma á rétt á stuðningi til starfsmenntunar. Greitt er hlutfallslega fyrir fólk í hlutastörfum.
Við ákvörðun upphæðar er miðað við greidd félagsgjöld síðustu 12 mánaða. Félagsgjald af lágmarkslaunum í 100% starfi eða meira gefur fulla styrkupphæð.
1.1. Sá sem hverfa þarf tímabundið af vinnumarkaði af ástæðum sem valda því að ekki ber að skila tryggingagjaldi af launum hans, heldur í allt að 24 mánuði þeim rétti til starfsmenntunarstyrks sem hann hafði áunnið sér hjá sjóðnum. Að 24 mánuðum liðnum fellur réttur hans að fullu niður.
1.2. Foreldrar í fæðingar- eða foreldraorlofi geta nýtt sér áunninn rétt ef þeir velja að greiða stéttarfélagsgjöld á meðan á orlofi stendur.
1.3. Félagsmenn í atvinnuleit halda áunnum rétti sínum eins og hann var við starfslok ef þeir velja að greiða stéttarfélagsgjöld af atvinnuleysisbótum.
1.4. Félagsmaður sem hverfur frá vinnu og hættir að greiða til aðildarfélags Landsmenntar heldur áunnum réttindum sínum til styrks í 3 mánuði. Að þeim tíma liðnum fellur rétturinn niður.
1.5. Réttur ellilífeyrisþega: helst í allt að 24 mánuði frá því viðkomandi hættir að vinna.
1.6. Áunnin réttindi félagsmanna innan Landsmenntar, Sjómenntar, Starfsafls, Starfsmenntasjóðs verslunar- og skrifstofufólks, Ríkismenntar SGS og Sveitamenntar SGS og LN haldast óbreytt þrátt fyrir flutning á milli aðildarfélaga sjóðanna.
1.7. Umsækjandi sem reynist hafa gefið rangar eða villandi upplýsingar, eða notar fölsuð gögn við styrkumsókn, missir rétt sinn til styrks í 36 mánuði. Hafi umsækjandi fengið greidda styrkupphæð á grundvelli falsaðra eða rangra gagna, er heimilt að krefja viðkomandi um endurgreiðslu á heildarupphæð styrks auk dráttarvaxta. Stjórn sjóðsins áskilur sér rétt til að kæra til lögreglu brot af þessu tagi.
Fullur réttur í námsstyrk er 90% af reikningi en þó aldrei meira en kr. 180.000 á ári.
2.1. Félagsfólk sem hefur ekki nýtt sér rétt sinn síðustu þrjú ár eiga rétt á styrk fyrir eitt samfellt nám eða námskeið.
I. Rétturinn skerðist ekki hafi félagsmaður fengið styrk undir kr. 50.000 á tíma uppsöfnunar (sá styrkur kemur þó til frádráttar).
II. Ferðakostnaður getur að hámarki orðið kr. 180.000 sem hluti af kostnaði.
III. Greiðslur til sjóðsins þurfa að hafa borist að lágmarki í 30 af síðustu 36 mánuðum, eða 20 af 24 vegna tveggja ára réttar.
IV. Uppsafnaður tveggja og þriggja ára réttur fyrir árin 2023–2025 er áfram kr. 130.000 á ári miðað við fullt starf, en kr. 180.000 frá og með 1. janúar 2026.
V. Aðeins er hægt að sækja um styrkinn í einu lagi og umsókn um ferðastyrk þarf að berast samhliða,
Starfstengd námskeið, netnámskeið, nám til eininga og réttinda teljast styrkhæf hjá sjóðnum. Einnig raunfærnimat og starfstengdar ráðstefnur innanlands og erlendis sem og tungumálanám.
I. Nám til eininga og nám, próf og efniskostnðaur sem veitir eða viðheldur auknum réttindum, á framhalds-og háskólastigi sem og viðurkenndum fræðsluaðilum.
II. Skólagjöld í framhaldsskóla að undanskyldum valfrjálsum gjöldum s.s. skápa-nemenda- og/eða foreldrafélagsgjöld. Efniskostnaður vegna annars náms telst ekki styrkhæfur.
III. Öku-og vinnuvélanám til réttinda eða endurnýjun þeirra þ.m.t. almennt ökunám og ökutímar.
IV. Prófa-og skírteinisgjöld sem hluti af námi.
V. Nám sem fellur undir löggildar iðngreinar.
VI. Tölvunám
VII. Tungumálanám hjá viðurkenndum fræðsluaðilum eða aðilum sem uppfylla hæfniskilyrði sjóðanna SETJA INN LINK . Eftir 1. janúar 2027 verður einungis hægt að fá styrk ef nám hefur farið fram hjá viðurkenndum fræðsluaðila menntamálaráðuneytis.
VIII. Netnámskeið þarf að hafa skilgreint upphaf, endi og vera með leiðbeinanda.
IX. Áskrift að vefsíðu/efnisveitu með starfstengdum námskeiðum/kennsluefni styrkir sjóðurinn að hámarki aðgang til eins árs.
X. Raunfærnimat þ.e. kostnaðarþátttaka félagsfólks aðildarfélaga SGS sem ekki tilheyra markhópi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins geta sótt um almennan styrk.
XI. Ráðustefna innanlands og erlendis. Hún þarf að tengjast því starfi sem greitt er af til sjóðs. Dagskrá þarf einnig að vera með starfstengdum fræðsluerindum og skipulögð. Sé tenging við starf óljós þarf rökstuðningur að fylgja umsókn. Eingöngu er hægt að fá styrk vegna ráðstefnugjalds.
Einstaklingar sem þurfa að sækja styrkhæft nám eða námskeið um langan veg innanlands eiga rétt á stuðningi við ferða- og dvalarkostnað. Sótt er um á sérstöku eyðublaði og styrkurinn afgreiddur af stéttarfélaginu í umboði Landsmenntar, sér frá og dregst frá hámarki einstaklingsstyrkja.
Námskeið þarf að uppfylla eftirfarandi:
Áfrýjunarréttur: Ef félagsmaður telur sig eiga rétt á styrk til starfsmenntunar, en er hafnað um styrk af viðkomandi verkalýðsfélagi, getur hann vísað umsókn sinni til stjórnar Landsmenntar til afgreiðslu.
Breyting á starfsreglum: Reglur þessar geta tekið breytingum samkvæmt ákvörðun stjórnar hverju sinni.
Fyrirtæki, stéttarfélög og/eða fræðsluaðilar sækja um styrki til stjórnar Landsmennt með því að senda umsókn í gegnum umsóknarvefgáttina Áttina (attin.is), þar sem fram koma helstu upplýsingar um viðkomandi fræðsluverkefni.
Afstaða stjórnar til styrkveitinga í þróunarverkefni, stærri fræðsluverkefni og námsefnisgerð er metin hverju sinni út frá eðli verkefnanna. Veittir eru þróunar- og nýsköpunarstyrkir í rafrænt námsumhverfi fyrirtækja, uppsetningu og þróun, að mati stjórnar hverju sinni.
Reglurnar hér að ofan eru settar af stjórn sjóðsins á grundvelli reglugerðar hans, sem kveður á um skipulag sjóðsins, stjórn, tekjur og reikningsskil. Lesa reglugerðina.