Um okkur

Fræðslusjóður Samtaka atvinnulífsins og stéttarfélaga á landsbyggðinni. Styrkir fræðslu og starfsþróun 16 stéttarfélaga.

Landsmennt er fræðslusjóður Samtaka atvinnulífsins og verkafólks á landsbyggðinni. Aðildarfélögin eru 16 stéttarfélög innan Starfsgreinasambands Íslands.

Helstu verkefni Landsmenntar eru að styrkja fræðslu-og starfsfþróun sem og að sinna stuðningsverkefnum, þróunar- og hvatningaraðgerðum í starfsmenntun. Sjóðnum er ætlað að styrkja rekstur námskeiða og stuðla að nýjungum í námsefnisgerð ásamt því að veita einstaklingum, verkalýðsfélögum og fyrirtækjum beina styrki vegna sí- og endurmenntunar.