Starfsreglur Sjómenntar í heild: skilyrði, upphæðir, áunnin réttindi og frágangur styrkja, bæði fyrir einstaklinga og vinnustaði.
Umsækjandi sem reynist hafa gefið rangar eða villandi upplýsingar, eða notar fölsuð gögn við styrkumsókn, missir rétt sinn til styrks í 36 mánuði. Hafi umsækjandi fengið greidda styrkupphæð á grundvelli falsaðra eða rangra gagna, er heimilt að krefja viðkomandi um endurgreiðslu á heildarupphæð styrks auk dráttarvaxta. Stjórn sjóðsins áskilur sér rétt til að kæra til lögreglu brot af þessu tagi.
Fullur réttur í námsstyrk er 90% af reikningi en þó aldrei meira en kr. 130.000 á ári frá og með 1. janúar 2024 og gildir gagnvart þeim umsóknum sem berast eftir þann tíma.
Einstaklingar sem þurfa að sækja styrkhæft nám eða námskeið um langan veg innanlands eiga rétt á stuðningi við ferða- og dvalarkostnað. Sótt er um á sérstöku eyðublaði og styrkurinn afgreiddur af stéttarfélaginu í umboði Sjómenntar, sér frá og dregst frá hámarki einstaklingsstyrkja.
Áfrýjunarréttur: Ef félagsmaður telur sig eiga rétt á styrk til starfsmenntunar, en er hafnað af viðkomandi stéttarfélagi, getur hann vísað umsókn sinni til stjórnar Sjómenntar til afgreiðslu.
Breyting á starfsreglum: Reglur þessar geta tekið breytingum samkvæmt ákvörðun stjórnar hverju sinni.
Fyrirtæki, stéttarfélög og/eða fræðsluaðilar sækja um styrki til stjórnar Sjómennt með því að senda umsókn í gegnum umsóknarvefgáttina Áttina (attin.is), þar sem fram koma helstu upplýsingar um viðkomandi fræðsluverkefni.
Afstaða stjórnar til styrkveitinga í þróunarverkefni, stærri fræðsluverkefni og námsefnisgerð er metin hverju sinni út frá eðli verkefnanna. Veittir eru þróunar- og nýsköpunarstyrkir í rafrænt námsumhverfi fyrirtækja, uppsetningu og þróun, að mati stjórnar hverju sinni.
Reglurnar hér að ofan eru settar af stjórn sjóðsins á grundvelli reglugerðar hans, sem kveður á um skipulag sjóðsins, stjórn, tekjur og reikningsskil. Lesa reglugerðina.