Í ljósi aðstæðna í íslensku samfélagi hefur stjórn Sjómenntar ákveðið að rýmka úthlutunarreglur vegna styrkveitinga og bjóða einstaklingum og fyrirtækjum uppá þann valkost að…
Átakið gildir frá 15.mars til og með 31.ágúst 2020 og gildir gagnvart námi/námskeiðum sem haldin eru innan þessa sama tímaramma.
Nánari útfærsla á átaksverkefninu: Gerðir verða samningar við fræðsluaðila sem bjóða upp á vefnám/fjarnám þar sem fyrirtækjum og einstaklingum er boðin þátttaka í námi/námskeiðum þeim að kostnaðarlausu. Þak á þáttökugjaldi pr. einstakling pr. námskeið er kr. 30.000,- samkvæmt þessum samningum.
Breytingar á úthlutunarreglum eru eftirfarandi:
Um leið og Sjómennt hvetur stjórnendur fyrirtækja til þess að sinna sí-og endurmenntun starfsmanna sinna, vill stjórnin koma því á framfæri að tekið verði á móti öllum góðum hugmyndum að fræðslu sem kynnu að nýtast og falla vel að úthlutunarreglum sjóðsins.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Njálsdóttir í síma 863 6480 eða á tölvupósti, sjomennt@sjomennt.is


